Site icon Golfsamband Íslands

Ferðasjóður íþróttafélaga – skilafrestur umsókna er 10. janúar 2022

Frá 11. flöt á Korpúlfsstaðavelli. Mynd/seth@golf.is

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) vekur athygli á því að umsóknum í Ferðasjóð íþróttafélaga vegna keppnisferða ársins 2021 þarf að skila í gegnum umsóknarvef sjóðsins fyrir miðnætti 10. janúar 2022. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÍSÍ.

Öll íþrótta- og ungmennafélög innan ÍSÍ hafa rétt til að sækja um styrk í sjóðinn, „vegna keppnisferða í viðurkenndum íþróttagreinum innan ÍSÍ á fyrirfram skilgreind styrkhæf mót“.

Smellið hér til að fara a umsóknarvefinn

Exit mobile version