Site icon Golfsamband Íslands

Bjarki og Axel keppa á Nordic Golf League móti í Svíþjóð

Tveir keppendur frá Íslandi taka þátt á PGA Championship Landeryd Masters mótinu sem hófst í dag á Vesterby vellinum í Svíþjóð. Þeir eru Bjarki Pétursson, GKG og Axel Bóasson, GK.

Mótið hófst í dag miðvikudaginn 28. júní og eru leiknir þrír keppnishringir á þremur dögum.

Mótið er hluti af Nordic Golf League atvinnumótaröðinni. – sem er í þriðja efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit frá mótinu í Svíþjóð.

Mótaröðin hefur reynst íslenskum kylfingum vel á undanförnum árum og opnað dyr inn á Áskorendamótaröðina (Challenge Tour). Fimm efstu á stigalistanum í lok keppnistímabilsins fá keppnisrétt á Challenge Tour og þrír sigrar á þessu tímabili tryggja einnig keppnisrétt á Challenge Tour.

Á stigalistanum er Axel í 6. sæti en hann hefur leikið á alls tíu mótum á þessu tímabili, Bjarki hefur leikið á átta mótum og er í 23. sæti á stigalistanum.

Exit mobile version